Ótrúlegar hækkanir!

Það er með ólíkindum að hækkaðir skulu neysluskattar þegar þeir fara beint út í verðlagið og hækka þannig vísitölu neysluverðs, sem aftur skilar sér í hækkunum á húsnæðislánum og öðrum vísitölutryggðum lánum. Það væri kannski í lagi að beita þessum úrræðum ef afnumin hefði verið vísitölutrygging lána en því þora stjórnmálamenn ekki. Keyra þarf niður okurvexti í þjóðfélaginu en ekki fara í aðgerðir sem hækka þá.

Ég spyr;  er þetta hjálpin við heimilin í landinu?

Nær hefði verið að hækka beina tekjuskatta og draga úr styrkjum og óþarfa eyðslu á vegum hins opinbera. Minnka umsýslu ráðuneyta, ferðakostnað og styrki. Einnig mætti leggja niður rekstur dýrra sendiráða um allan heim. Draga þannig úr eyðslu í opinberum rekstri og veita þeim peningum sem þannig fást í atvinnuuppbyggingu.

Ég hvet fólk til þess að láta í sér heyra og láta ekki bjóða sér þessa vitleysu.


mbl.is Bensínið aldrei dýrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband